Samstarfsvettvangur Bandalags íslenskra skáta, KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Ungmennafélags Íslands.
Æskulýðsvettvangurinn hefur unnið að þróun verkfæra sem íþrótta- og æskulýðsfélög og aðrir sem starfa með börnum og ungmennum eru hvött til þess að nýta sér til þess að stuðla að inngildandi félagi og starfsemi.
Kynntu þér hugtök, stefnu, viðbragðsáætlun og gátlista og pantaðu námskeið eða vinnustofu!
Með auknum samskiptum í gegnum netið eru börn og ungmenni berskjaldaðri gagnvart neteinelti sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þolendur, gerendur og samfélagið í heild sinni.
Við höfum útbúið fræðsluefni um neteinelti, mismunandi birtingamyndir, einkenni og alvarlegar afleiðingar þess.
Æskulýðsvettvangurinn hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau fyrir þau félagasamtök sem saman mynda vettvanginn, aðildarfélög þeirra og aðra áhugasama. Námskeiðið er byggt á efni samnefndrar bókar og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og ungmennum.
Skoða námskeiðNámskeiðinu er ætlað að auka þekkingu starfsfólks og sjálfboðaliða í íþrótta- og æskulýðsfélögum um land allt á einelti, ofbeldi og áreitni sem börn og ungmenni geta orðið fyrir og afleiðingunum af því.
Námskeiðið skiptist í tíu kafla og inniheldur fræðslu um líkamlegt og andlegt ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi, vanrækslu, samskiptavanda og einelti, með áherslu á börn og ungmenni.
Mikilvægt er fyrir alla sem starfa með börnum og ungmennum að vera meðvituð um skyldur sínar og ábyrgð.
Siðareglur þessar gilda fyrir allt starfsfólk og sjálfboðaliða Æskulýðsvettvangins. Þær snúa annars vegar að samskiptum við ungmenni og hins vegar að rekstri og ábyrgð þeirra sem starfa með börnum og unglingum.
Það eru ýmis atvik sem upp kunna að koma í íþrótta- og/eða æskulýðsstarfi og bregðast þarf við. Erfitt er að gera þeim öllum skil en mikilvægt að hafa ákveðnar grunnreglur til að fylgja.
Áætlunin er þríþætt og nær til; Atvika sem upp kunna að koma í íþrótta- og/eða æskulýðsstarfi. Áfalla sem börn, ungmenni og ábyrgðaraðilar verða fyrir í starfi. Áfalla sem börn, ungmenni og ábyrgðaraðilar verða fyrir utan félagsstarfs, en gætu haft áhrif á líðan þeirra og störf innan félagsstarfsins.